|
Nýju efni hefur verið bætt inn á síðuna, en það er eingöngu aðgengilegt félögum í Þyt sem hafa skráð sig sem notendur á síðuna. Hér er um að ræða fundargerðir, bæði ágrip af fundargerðum stjórnar og fundargerðir frá félagsfundum. Markmiðið er að gera starf stjórnar gagnsærra, svo félögar í Þyt geti séð þau málefni sem stjórn er að vinna í hverju sinni og einnig svo þeir sem missa af félagsfundum geti séð rauða þráðinn í því sem fram fór. Stjórnin vonar að þetta verði til þess fallið að auka áhuga félagsmanna í Þyt og jafnvel blása lífi í glæður sem teknar eru að kulna hjá sumum módelmönnum.
Þá er verið að setja félagatal inn á vefinn og verður það aðgengilegt skráðum félögum eingöngu. Ef einhver vill ekki láta upplýsingar s.s. símanúmer eða netfang koma fram á vefnum, þá er viðkomandi beðinn um að hafa samband við yfirritaðan hið fyrsta. Til að skrá sig inn á vefinn þarf að smella á tengilinn "Nýskrá" hægra megin á síðunni. Notandi þarf að velja sér notendanafn og lykilorð og skrá réttar upplýsingar. Jafnframt þarf notandi að hafa gilt netfang, þar sem staðfesting skráningar verður sent á netfang viðkomandi. Í þeirri staðfestingu er slóð sem smella þarf á til að virkja aðganginn. Hafið samband við yfirritaðan ef vandkvæði eru á skráningu. Til að hægt sé að fylgjast með því að um meðlimi Þyts sé að ræða eru menn beðnir um að gefa upp réttar upplýsingar og gjarnan að velja notandanafn sem gefur til kynna hver vðkomandi er. Vonandi taka sem allra flestir vel í þessar breytingar og þær verða til að þjappa mönnum saman um félagið og framtíð þess. |