|
Fimmtudaginn 15. nóvember 2007, kl. 20:00 í Bíósalnum (Þingsal 5) Hótel Loftleiðum, Reykjavíkurflugvelli. Þeir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjöld fyrir árið 2007 hafa einir atkvæðisrétt á aðalfundinum.
DAGSKRÁ AÐALFUNDAR 1. Skýrsla formanns um störf félagsins á liðnu starfsári. 2. Reikningar lagðir fram til samþykktar. 3. Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda. 4. Skýrslur nefnda. 5. Kosning formanns samkvæmt ákvæðum 9.gr. 6. Kosning ritara, gjaldkera og meðstjórnenda samkvæmt ákvæðum 9.gr. 7. Kosning endurskoðenda. 8. Kosning í nefndir. 9. Tillögur og lagabreytingar. 10. Önnur mál. Með fylgja lög Þyts í heild frá 3.11.2005 og samhljóða samþykkt tillaga stjórnar að lagabreytingum (Smellið á Lesa meira til að sjá tillögu að lagabreytingum). Helstu breytingar eru að lögin hafa verið númeruð upp tl þess að vera gleggri í aflestri fyrir félagsmenn. Í kaffihléi verður boðið upp á veitingar í boði félagsins. Stjórnin ATH: Fundarboð hefur ekki borist öllum félögum í Þyt. Við þessu er verið að reyna að bregðast með því að hafa samband við þá með öðrum hætti, þ.e. símleiðis eða með tölvupósti. Stjórnin vill að sjálfsögðu hvetja sem flesta félagsmenn til að koma á aðalfund Þyts. Reikningar Þyts liggja fyrir að Hamranesi. TILLAGA TIL LAGABREYTINGA 1. grein hljóðar svo:1. grein - FÉLAGIÐ Félagið heitir Þytur og er samband áhugamanna um flug og smíði flugmódela. Heimili félagsins og varnarþing er í Hafnarfirði. en verður:1.grein NAFN FÉLAGSINS 1.1 Félagið heitir Þytur og er samband áhugamanna um flug og smíði flugmódela. 1.2 Heimili félagsins og varnarþing er í Hafnarfirði. 2. grein hljóðar svo:2. grein - MARKMIÐ 1 Að efla áhuga á smíði og flugi flugmódela. 2 Að efla almenna þekkingu á flugi og þá einkum módelflugi. 3 Að stofna til keppni í hinum ýmsu greinum módelflugs. 4 Að tryggja félagsmenn fyrir hugsanlegu tjóni sem flugmódel kunna að valda samkvæmt skilmálum tryggingaskírteina. en verður:2.greinMARKMIÐ 2.1 Að efla áhuga á smíði og flugi flugmódela. 2.2 Að vera aðili að Flugmálafélagi Íslands. 2.3 Að efla almenna þekkingu á flugi og þá einkum módelflugi. 2.4 Að stofna til keppni í hinum ýmsu greinum módelflugs. 2.5 Að tryggja félagsmenn fyrir hugsanlegu tjóni sem flugmódel kunna að valda samkvæmt skilmálum trygginaskírteina. 3. grein hljóðar svo: 3. grein - FÉLAGAR Allir áhugamenn um módelflug geta orðið félagar í Þyt. Umsækjandi telst félagi er stjórn félagsins hefur staðfest umsókn hans og hann greitt félagsgjald. en verður:3.greinFÉLAGAR 3.1 Allir áhugamenn um módelflug geta orðið félagar í Þyt. 3.2 Umsækjandi telst félagi er stjórn félagsins hefur staðfest umsókn hans og hann greitt félagsgjald. 3.3 Heimilt er að kjósa heiðursfélaga, þá er unnið hafa markverð störf í þágu módelflugs á Íslandi. Til kjörs heiðursfélaga þarf samhljóða atkvæði allra stjórnarmanna. 3.4 Heiðursfélagi er síðan samþykktur á aðalfundi með einföldum meirihluta. 4. grein hljóðar svo:4. grein - AÐALFUNDUR Aðalfundur hefur æðsta vald í öllum málefnum félagsins. Aðalfund skal halda fyrsta fimmtudag í nóvembermánuði ár hvert. Aðalfund skal boða bréflega með tveggja vikna fyrirvara og telst aðalfundur lögmætur ef 35% skuldlausra félagmanna eru mættir. Nú er aðalfundur ólögmætur vegna ónógrar þátttöku og skal þá boðaður annar fundur með sama fyrirvara sem telst lögmætur hafi hann verið boðaður í samræmi við reglur félagsins. en verður:4.greinAÐALFUNDUR 4.1 Aðalfundur hefur æðsta vald í öllum málefnum félagsins. 4.2 Aðalfund skal halda í októbermánuði ár hvert. 4.3 Aðalfund skal boða bréflega með tveggja vikna fyrirvara og telst aðalfundur lögmætur ef 35% skuldlausra félagmanna eru mættir. 4.4 Nú er aðalfundur ólögmætur vegna ónógrar þátttöku og skal þá haldinn framhaldsaðalfundur eigi síðar en 30 dögum seinna. Fundurinn skal boðaður með sama fyrirvara og aðalfundur og telst hann lögmætur hafi hann verið boðaður í samræmi við reglur félagsins. 5. gr. hljóðar svo:5. grein - DAGSKRÁ AÐALFUNDAR 1 Skýrsla formanns um störf félagsins á liðnu starfsári. 2 Reikningar lagðir fram til samþykktar. 3 Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda. 4 Skýrslur nefnda. 5 Kosning formanns samkvæmt ákvæðum 9.gr. 6 Kosning ritara, gjaldkera og meðstjórnenda samkvæmt ákvæðum 9.gr. 7 Kosning endurskoðenda. 8 Kosning í nefndir. 9 Tillögur og lagabreytingar. 10 Önnur mál. Aðalfundur ákveður inntöku og árgjald félagsins. Kosningarétt og kjörgengi á aðalfundi hafa allir skuldlausir félagar. Atkvæði eru óframseljanleg. Kosningar skulu vera skriflegar nema fundurinn samþykki annað. Reikningaskil og fjárhagsáætlun skulu liggja frammi a.m.k. viku fyrir aðalfund. en verður:5.greinDAGSKRÁ AÐALFUNDAR 5.1 Formaður setur aðalfund Þyts. 5.2 Kosning fundarstjóra og ritara aðalfundarins. 5.3 Skýrsla formanns um störf félagsins á liðnu starfsári. 5.4 Reikningar lagðir fram til samþykktar. 5.5 Ákvörðun félagsgjalda. 5.6 Skýrslur nefnda. 5.7 Kosning formanns samkvæmt ákvæðum 8.gr. 5.8 Kosning ritara, gjaldkera og meðstjórnenda samkvæmt ákvæðum 8.gr. 5.9 Kosning skoðunarmanna reikninga. 5.10 Kosning í nefndir. 5.11 Tillögur um lagabreytingar. 5.12 Önnur mál Kosningarétt og kjörgengi á aðalfundi hafa allir skuldlausir félagar. Atkvæði eru óframseljanleg. Kosningar skulu vera skriflegar nema fundurinn samþykki annað. 6. grein hljóðar svo:6. grein - FÉLAGSGJÖLD Félagsgjöld skiptast í þrjá flokka, almenn félagsgjöld, ungmennagjöld og nýliðagjöld. Almennir félagsmenn greiða félagsgjald eins og það er ákveðið á aðalfundi hverju sinni. Ungir félagsmenn greiða einn fjórða af félagsgjaldi eins og það er ákveðið á aðalfundi. Ungir félagsmenn eru þeir sem verða 18 ára eða yngri á viðkomandi félagsári. Nýir félagar eldri en 18 ára greiða hálft félagsgjald fyrsta árið. Þeir sem ganga í félagið í september til og með desember greiða félagsgjald næsta árs á eftir. Þeir sem hafa greitt félagsgjald hafa rétt til að nýta sér alla aðstöðu félagsins að Hamranesi. Heiðursfélagar greiða ekki félagsgjöld en hafa sömu réttindi og aðrir skuldlausir félagar. en verður:6.greinFÉLAGSGJÖLD 6.1 Félagsgjöld eru ákveðin á aðalfundi. 6.2 Félagsgjöldin skiptast í tvo flokka: 1. flokkur, almenn félagsgjöld. 2. flokkur, “-17 +70” yngri en 17 ára og eldri en 70 ára, greiða hálft félagsgjald. 6.3 Þeir sem ganga í félagið á tímabilinu september til desember greiði hálft félagsgjald fram að næstu lyklaskiptum að flugsvæði félagsins á Hamranesi. 6.4 Félagsgjaldinu fylgir réttur til að nýta sér aðstöðu félagsins á Hamranesi. 6.5 Heiðursfélagar greiða ekki félagsgjöld en hafa sömu réttindi og aðrir skuldlausir félagar. 7. grein hljóðar svo:7. grein - LAGABREYTINGAR Á aðalfundi þarf einfaldan meirihluta til samþykktar mála. Tillögur um lagabreytingar skal senda stjórn félagsins með ábyrgðarbréfi, eða á annan sannanlegan hátt, minnst 30 dögum fyrir aðalfund. Tillögur um lagabreytingar sem afgreiða skal á aðalfundi skulu fylgja fundarboði aðalfundar. Til samþykktar á lagabreytingum og til sölu á fasteignum þarf þó 2/3 hluta atkvæða þeirra sem mættir eru á aðalfundi og skulu fundargerðir undirritaðar af fundarstjóra og formanni. en verður:7.greinLAGABREYTINGAR 7.1 Tillögur um lagabeytingar skal senda stjórn félagsins með ábyrgðarbréfi, eða á sannanlegan hátt, minnst 30 dögum fyrir aðalfund. 7.2 Tillögur um lagabreytingar sem afgreiða skal á aðalfundi skulu fylgja fundarboði aðalfundar. 7.3 Á aðalfundi þarf einfaldan meirihluta til samþykktar mála. 7.4 Til samþykktar lagabreytinga þarf 2/3 hluta atkvæða þeirra sem mættir eru á aðalfundi. 7.5 Fundargerðir skulu undirritaðar af fundarstjóra og formanni. 8. gr. hljóðar svo:8. grein - NÁMSKEIÐ Stjórn félagsins hefur heimild til þess að halda námskeið á vegum félagsins. Námskeiðsgjöld fara til viðhalds á kennslubúnaði félagsins. Þeir sem greiða fyrir námskeið verða félagar í Þyti og greiða ekki sérstakt félagsgjald, umfram námskeiðsgjaldið fyrsta árið. Greinin fellur niður. 9. grein hljóðar svo:9. grein - STJÓRN Stjórn félagsins skipa 5 menn. Formaður, ritari, gjaldkeri, og tveir meðstjórnendur og sitja þeir alla stjórnarfundi. Aðalfundur kýs formann, ritara og einn meðstjórnenda þau ár sem enda á jafnri tölu, en gjaldkera og einn meðstjórnanda þau ár sem enda á oddatölu. Heimilt er að víkja frá þessu fyrirkomulagi ef upp koma sérstakar aðstæður. Ritari skal gegna störfum formanns í forföllum hans. en verður 8. grein og hljóðar svo:8.greinSTJÓRN 8.1 Stjórn félagsins skipa fimm menn. Formaður, ritari, gjaldkeri og tveir meðstjórnendur og sitja þeir alla stjórnarfundi. 8.2 Aðalfundur kýs formann, ritara og einn meðstjórnenda þau ár sem enda á jafnri tölu, en gjaldkera og einn meðstjórnanda þau ár sem enda á oddatölu. 8.3 Heimilt er að víkja frá þessu fyrirkomulagi ef upp koma sérstakar aðstæður. 8.4 Ritari skal gegna störfum formanns í forföllum hans. 10. grein hljóðar svo:10. grein - STJÓRNARFUNDIR Stjórnarfundur er löglegur ef minnst þrír stjórnarmenn eru mættir, þ.m.t. annað hvort formaður eða ritari. Verði atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns. en verður 9. grein og hljóðar svo:9. grein STJÓRNARFUNDIR 9.1 Stjórnarfundur er löglegur ef minnst þrír stjórnarmenn eru mættir, þ.m.t. annað hvort formaður eða ritari. 9.2 Verði atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns. 11. grein hljóðar svo:11. grein - SKULDBINDINGAR Formaður og gjaldkeri ásamt einum meðstjórnanda skuldbinda félagið með undirskriftum sínum. en verður 10. grein og hljóðar svo:10. greinSKULDBINDINGAR 10.1 Formaður og gjaldkeri ásamt einum meðstjórnanda skuldbinda félagið með undirskriftum sínum. 12. grein hljóðar svo:12. grein - TJÓN VEGNA MÓDELFLUGS Félagið ber ekki ábyrgð á slysum eða tjóni, sem hljótast kunna vegna módelflugs. en verður 11. grein og hljóðar svo:11. greinTJÓN VEGNA MÓDELFLUGS 11.1 Félagið ber ekki ábyrgð á slysum eða tjóni, sem hljótast kunna vegna módelflugs. 13. grein hljóðar svo:13. grein - BOÐUN FÉLAGSFUNDA Stjórnin boðar til félagsfundar með dagskrá eftir því sem ástæða þykir til. Skylt er að halda félagsfundi ef tveir stjórnarmenn eða 10 félagsmenn krefjast þess, og skal fundurinn boðaður með viku fyrirvara. Félagsfundir geta hnekkt ákvörðun stjórnar. en verður 12. grein og hljóðar svo:12. greinBOÐUN FÉLAGSFUNDA 12.1 Stjórnin boðar til félagsfundar með dagskrá eftir því sem ástæða þykir til. 12.2 Skylt er að halda félagsfundi ef tveir stjórnarmenn eða 10 félagsmenn krefjast þess og skal fundurinn boðaður með viku fyrirvara. 12.3 Félagsfundir geta hnekkt ákvörðun stjórnar. Tillögu um að hnekkja ákvörðun stjórnar þarf að bera upp á fundinum. Til að tillagan teljist samþykkt þurfa 35% skuldlausra félagsmanna að sækja fundin og þarf tillagan að hljóta 2/ hluta atkvæða til að hljóta samþykki. 14. grein hljóðar svo:14. grein - FLUGMÁLAFÉLAG ÍSLANDS Þytur er aðili að Flugmálafélagi Íslands. Stjórn félagsins situr þing Flugmálafélags Íslands, sem haldið er annað hvert ár og skipar með sér þann fjölda fulltrúa sem félagið hefir rétt á hverju sinni samkvæmt lögum FMÍ. en verður 14. gr. og hljóðar svo:13. greinFLUGMÁLAFÉLAG ÍSLANDS 13.1 Stjórn félagsins situr þing Flugmálafélags Íslands hverju sinni og skipar með sér þann fjölda fulltrúa sem félagið hefir rétt á hverju sinni samkvæmt lögum FMÍ. 13.2 Stjórn Þyts tilnefnir fulltrúa til þátttöku í störfum FMÍ. 15. grein hljóðar svo:15. grein - FJÁRMÁL Reikningsárið er frá 1. september til 31. ágúst ár hvert. Reikningar félagsins skulu vera endurskoðaðir af tveimur endurskoðendum. Ársreikningur skal liggja frammi minnst viku fyrir aðalfund og borinn fram til samþykktar á aðalfundi. Einnig skal á aðalfundi leggja fram sérstakan lista yfir eignir félagsins. Ekki er heimilt að selja eða gefa eignir félagsins sem eru á listanum nema með samþykki 2/3 mættra félaga á félagsfundi, enda komi fram í fundarboði að til standi að ráðstafa eignum félagsins. en verður 14. grein og hljóðar svo: 14. grein FJÁRMÁL 14.1 Reikningsárið er frá 1. september til 31. ágúst ár hvert. 14.2 Reikningar félagsins skulu yfirfarnir af tveimur skoðunarmönnum reikninga. 14.3 Ársreikningur skal borinn fram til samþykktar á aðalfundi. 14.4 Ekki er heimilt að selja eða gefa eignir félagsins nema með samþykki 3/4 gildra félaga á sérstökum fundi, enda komi fram í fundarboði að til standi að ráðstafa eignum félagsins. 16. grein hljóðar svo:16. grein - ÚRSÖGN OG BROTTVIKNING Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg og send félagsstjórn. Úrsögnin tekur gildi einum mánuði eftir að hún berst stjórninni. Félagar sem ekki hafa greitt árgjöld sín til félagsins í tvö ár eða lengur, skulu strikaðir út af skrá þess, enda hafi skrifleg greiðsluáskorun verið send. Stjórnin getur vikið félaga úr félaginu, en ákvörðun þeirri er heimilt að áfrýja til næsta aðalfundar. en verður 15. grein og hljóðar svo:15. greinÚRSÖGN OG BROTTVIKNING 15.1 Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg og send félagsstjórn. 15.2 Úrsögnin tekur gildi einum mánuði eftir að hún berst stjórninni. 15.3 Félagar sem ekki hafa greitt árgjöld sín til félagsins í tvö ár eða lengur, skulu strikaðir út af skrá þess, enda hafi skrifleg greiðsluáskorun verið send. 15.4 Stjórnin getur vikið félaga úr félaginu, en ákvörðun þeirri er heimilt að áfrýja til næsta aðalfundar. 17. grein hljóðar svo:17. grein - FÉLAGSSLIT Félaginu verður aðeins slitið á aðalfundi, sem sérstaklega hefur verið boðaður í því skyni og verður a.m.k. helmingur atkvæðisbæra félagsmanna að vera mættur og ¾ hlutar fundarmanna að samþykkja slit þess. Verði félagsslit ákveðin, skal Bæjarstjórn Hafnarfjarðar falin umsjón eigna félagsins, þar til annað félag í sama tilgangi yrði stofnað og ganga eignir þá til hins nýja félags. en verður 16. grein og hljóðar svo:16. greinFÉLAGSSLIT 16.1 Félaginu verður aðeins slitið á aðalfundi, sem sérstaklega hefur verið boðaður í því skyni og verður a.m.k. helmingur atkvæðisbærra félagsmanna að vera mættur og ¾ hlutar fundarmanna að samþykkja slit þess. 16.2 Verði félagsslit ákveðin, skal Bæjarstjórn Hafnarfjarðar falin umsjón eigna félagsins, þar til annað félag í sama tilgangi yrði stofnað og ganga eignir þá til hins nýja félags. |