Viðburðatal

« < September 2010 > »
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Innskráning






Týnt lykilorð?
Enginn notandi skráður enn? Nýskrá
Heim arrow Mót Þyts
Mót Þyts
Mótaskrá 2008 PDF Prenta Netfang
Höfundur Ófeigur Ófeigsson 28-04-2008

Mótaskrá Þyts fyrir sumarið 2008 er að taka á sig endanlega mynd. Þau mót sem sett hafa verið á dagskrána eru sem hér segir:

  • Vöfflumótið. 3. maí, kl. 10:00 að Hamranesi
  • Kríumótið, 17. maí, kl. 10:00 að Höskuldarvöllum
  • Lendingarkeppni, 1. júní kl. 10:00 að Hamranesi
  • Íslandsmót F3F og F3B, 28.-29. júní. Staðsetning óákveðin.
  • Piper Cub flugkoma, 6. ágúst, kl. 19:00 að Hamranesi
  • Stórskalaflugkoma, 16. ágúst, kl. 10:00 að Tungubökkum

Að auki verður Þytsdagurinn haldinn með tilheyrandi tralli. Nánari tilkynningar koma síðar um öll þessi mót.

 
Vínarbrauðsmótið PDF Prenta Netfang
Höfundur Ófeigur Ófeigsson 22-05-2007

Helgina fyrir Páska hittast félagsmenn Flugmódelfélagsins þyts út í Flugstöð félagsins á Hamranesi til skrafs og ráðagerða. Hafa með sér kaffi á brúsa. (þar sem ekki er á þessum tíma búið að tengja vatns kerfi hússins) og hafa með sér nesti eins og vínarbrauð.

Lesa meira...
 
Kríumótið - Svifflugkoma PDF Prenta Netfang
Höfundur Ófeigur Ófeigsson 21-05-2007

Kríumót er hástartskeppni F3B módelsvifflugvéla og er fyrsta keppnismót sumarsins í félagsstarfi Flugmódelfélagsins Þyts. Þátttakendur í Kríumóti hittast gjarnan við Álverið í Straumsvík um morguninn mótsdaginn og halda þaðan kl. 10:00 áleiðis til Höskuldarvalla.

Dagsetning 12. maí.

Lesa meira...
 
Íslandsmótið í svifflugi PDF Prenta Netfang
Höfundur Ófeigur Ófeigsson 18-05-2007

Íslandsmót módel svifflugvéla í hástarti F3B og hangflugi F3F. Íslandsmót í módelsvifflugi eru haldin á vegum Flugmálafélags Íslands. Þetta er tveggja daga mót laugardag og sunnudag. Undanfarin ár hefur keppnin í F3B verið haldin á flugvellinum við Gunnarsholt og F3F á Hvolsfjalli.

Dagsetning 30. júní - 1. júlí.

Lesa meira...
 
Piper Cub mótið PDF Prenta Netfang
Höfundur Ófeigur Ófeigsson 17-05-2007

Gula Piper Cub J3 flugvélin með svörtu eldingunni á hliðinni, hefur alltaf átt sér marga aðdáendur og margir smíðað Piper Cub flugmódel. Þeir koma allir saman með Piper Cub flugmódelin sín stór og smá til að lita Hamranes gult.

Dagsetning óákveðin.

Lesa meira...
 
Þytsdagurinn PDF Prenta Netfang
Höfundur Ófeigur Ófeigsson 16-05-2007

Þytsdagurinn er flugkoma þar sem allir þeir félagar í módelklúbbum landsins sem módeli geta valdið koma saman og skemmta sér daglangt með flugmódelum, spjalli og grilluðum pylsum.

Dagsetning: 7. júlí.

Lesa meira...
 
Lendingarkeppni PDF Prenta Netfang
Höfundur Ófeigur Ófeigsson 15-05-2007

Lendingarkeppni: Keppendur hafi hugfast að lendingarkeppni er hæfnisíþrótt, þar sem markmiðið er að sýna færni flugmanns til að lenda flugmódeli á fyrirfram ákveðinn hátt eða stað. Í lendingarkeppni eru þrautirnar (æfingarnar) þrjár og farnar þrjár umferðir, þannig a hver keppandi fær stigagjöf fyrir níu æfingar samtals.

Dagsetning óákveðin.

Lesa meira...
 
© 2010 Þytur flugmódelfélag
Joomla! is Free Software released under the GNU/GPL License.